Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Blogginski....

29. febrúar 2008 klukkan 19:21
Jæææææja hvað segir fólkið?

Ingó gafst upp.....hann snoðaði sig og er farinn að tala um sig í þriðju persónu..... Ég veit ekki af hverju en Auja snoðaði mig í svefni....ég tel að hún hafi sett svefnlyf í matinn minn og svo snoðað mig. En ég kann ágætlega við þetta....bara pínu kalt. :) Nei nei. Málið var bara það að mér fynnst bara svo geggjað þægilegt að vera snoðaður þannig að háruð fauk bara...

Eins og er þá er Hafþór og Kolbeinn í heimsókn og það er frábært :) Ég dýrka þá og dái.. Það voru svo Dýrindis Aujuborgarar í matinn....puhhh McDonalds hvað? :) Ég er í pásu í bili í karateinu...kominn með leiða og maður á ekki að pína sig áfram í einhverju sem veit ekki ánægju.... tjah... finnst ekki leiðinlegt meira svona aðeins að anda og taka mér pásu. :)

Mamma og Arnar eru að fara að syngja og spila á tónleikum í kvöld og ég vona að allt gangi vel....

Svo var annar drengjanna að deyja sem að lentu í bílslysinu. Megi hann hvíla í friði.

Brynja systir var að koma heim á klakann og það verður skírn á sunnudaginn... hlakka til

en ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...

sjáumst seinna....


IngÓ
Ingólfur Pétursson

Leeeti

03. febrúar 2008 klukkan 21:06
Sæl verið þið.

Ég get ekki sagt að ég sé duglegur að blogga og það er alveg satt hehe.

Fyrir utan það að ég sé latur þá er líka búið að vera brjálað að gera hjá mér. Ég er að vinna úti á landi við að reisa sumarbústað rétt hjá Heklu. Þannig að ég er í goshættu ef Hekla gerir vart við sig. :)

Þetta er þannig að ég fer á mánudagsmorgni þangað og vinn frá hálf átta á mornanna til hálf tíu á kvöldin alla vikuna og kem svo heim á föstudögum. Þetta er líka búið að vera svo frábært að allt er búið að bila sem getur bilað. Svo sem rafstöðvarnar sem gefa okkur ljós og rafmagn. Allt handneglt og tefur svo sannarlega fyrir verkum.

Þetta er nú að verða búið svo ég get farið að sinna kerlingunum mínum þremur heima. :)

Ekki nóg með það þá missir maður af öllum Karate og bogfimi æfingum og það er ekkert sérstaklega gaman..... en maður verður jú að velja og hafna. Svo er ég að klára stúdentinn núna í fjarnámi....þennan eina íslenskuáfanga sem ég átti eftir.

Svo núna um helgina var að hefjast undirbúningur fyrir sveinspróf og fór öll helgin mín í það að smíða valmaþak.....æðislega gaman....

Mann er farið að hlakka til sumarsins vegna víkinga hátíðanna en því miður er enginn hittingur búinn að vera nýlega í víkinga félaginu og ég vona að það verði nú sem fyrst.


Og já...meðan ég man ég auglýsi hér með eftir uppþvottavel ódýrt eða gefins :)

Svo smá einkahúmer hérna í lokin.... "Þetta er engill.......eða dvergur"....þetta sagði Gummi Þór félagi minn þegar ég lagði fyrir hann svona sálfræði blekklessu próf fyrir austan....mikið var hlegið að þessu í síðustu viku...og já maður verður svoldið ruglaður í svona einangrun með 3 gaurum....

En já tími til að sinna konunni :)

Ætla að reyna að vera duglegri að blogga. Vonandi bara um næstu helgi (=_=)

kv IngÓ
Ingólfur Pétursson

Smá fréttir

17. desember 2007 klukkan 18:33
Já halló halló.


Sæl verið þið og takk fyrir síðast. Langt síðan ég hef bloggað.

Það hefur nú ekki margt gerst undanfarna daga. Nema hvað ég er fluttur að heiman og bý með Auju og stelpunum hennar tveimur á Vallabraut 3. Allt gengur vel og við erum bara mjög sátt með lífið og tilveruna eins og er.

Maður er nú bara búinn að versla jólagjafirnar. Tja nema eina. Finn ekkert handa mömmu og Arnari. Ráð vel þegin :)

í gær var barnaafmæli hérna og guð minn góður. Það voru engin smá læti frá 15-20.  Mikið er ég feginn að þetta er bara tvisvar á ári :)

Það var mjög gaman út í London og gekk þar allt mjög vel.

Svo er maður að vinna og vinna og vinna og..... þið fattið þetta :) Æfingar á sínum tímum og allt í gúddí.....

Svo verður afmælis partý hjá mér og Gísla Birgi milli jóla og nýjárs... engin dagsetning ákveðin an það er öllum vinum okkar boðið :)

Jæja best að hafa sig til á æfingu og vona bara að ég bloggi bara aftur sem fyrst...

Another Day in the gamers life goes by...

IngÓ
Ingólfur Pétursson

Smá áskorun.

19. október 2007 klukkan 16:05
Jæja nú er ég með smá djúsí handa ykkur. Ég ætla að veðja við ykkur um hárið á mér.....Enn einusinni.

Ég ætla að safna því aftur eins og stendur hér í fyrri færslu.. en. Ég ætla ekki að skerða hár á höfðinu á mér...að skegginu utantöldu í 1000 daga. :)

Þetta er náttúrulega svolítið há tala. En ef mér tekst þetta hvað fæ ég þá? :)

Mér datt í hug að þeir sem að væru geim myndu leggja 1000 kall í púkk og skrifa nafnið sitt hér :D...hehe nei nei

það væri samt gaman... en já 1000 dagar... en ég má láta laga það til.


Þetta verða skemmtilegir 999 dagar sem eru eftir


Kv IngÓ
Ingólfur Pétursson

Taka 2

18. október 2007 klukkan 17:12
Veiga mikil ákvörðun var tekin í dag. Ég hef ákveðið að safna hári aftur.

Ég sá nokkrar víkingamyndir af mér í dag sem að fékk mig til að sakna hársins svo mikið að ég ætla að safna því aftur.

Þá er bara settur af stað teljari hér sem sýnir hvernig mér gengur....

IngÓ
Ingólfur Pétursson

Laaaangt síđan

17. október 2007 klukkan 17:28
Jæja það er ansi langt síðan að ég bloggaði síðast....

Það hefur nú ekki mikið gerst síðan síðast en nú samt eitthvað til að segja frá.

Maður er bara að vinna á fullu í Akri og vera á æfingum og sinna kærustunni....já rétt kærustunni ég á kærustu núna og búinn að vera með henni í einn og hálfann mánuð. Hún heitir Auja og er yndisleg. Við kynntumst nú bara á Café Mörk.. þeim merkis stað en það var eftir 2 langar vinnuvikur fyrir norðan. Þá var unnið í 16 tíma á dag og það var svoldið slítandi svo ég ákvað að fara og fá mér einn bjór eftir að ég kom heim. Þá gerðist það bara að ég kynntist Auju og við höfum bara ekki geta slitið okkur frá hvort öðru síðan.

Það er samt svoldið undarlegt að vera ekki í skóla á þessum tíma árs. Þar sem flestir mínir félagar eru nú í skóla og þess háttar. Maður reynir svona að hitta þá þegar maður getur en það er yfirleitt eitthvað að gerast hjá manni svo maður getur ekki hitt þá lengi.

Bíllinn minn var með leiðindi í þessari viku en það reddaðist.... Sem betur fer.

Félagi minn Helgi Hafsteins var að verða pabbi og eignaðist stelpu. Ég óska þeim til hamingju Helga og Soffíu með stelpuna :)

Svo framundan er utanlandsferð með karate-inu en það verða æfingarbúðir í London með idolinu mínu honum Richard Amos. Svo þið skiljið hvað ég meina þá er það eins og ef Teitur og Hafðór litlubræður mínir fengu að æfa með Tierry Henry eða Beckham eða eitthvað álíka. Ég get varla beðið eftir þessum æfingarbúðum en ég fer út 23 Nóvember.


En já ætla ekki að hafa þetta mikið lengra

See ya all out there...

IngÓ
Ingólfur Pétursson

Grettishátíđ og Ribe.

14. ágúst 2007 klukkan 13:47
Margt hefur nú gerst undanfarna daga.

Ég ætla að byrja á að tala aðeins um Grettishátíð sem var haldin um Versló.

Við mættum þangað nokkrir galvaskir víkingar og vorum í raun ekki að gera neitt. Ég sá jú um leiki fyrir krakkana, en eini gallinn við þessa hátíð var það að það vantaði allt fólkið á hana. Ég náði að smala saman krökkum í eitt prógram og ekki meira. Svo var konan sem að sá um þessa hátíð með þvílíkann móral. Við sem erum víkingar erum að koma þangað með góðu og sýna handverk, leiki, bogfimi og sumir bardaga. Víkingarnir áttu ekki að fá frítt að borða eða frítt á skemmtunina. Sem er náttúrulega fáránlegt.... Það er eins og að láta hljósveitina borga inn á sitt eigið ball. Annars var þetta mjög gaman. Stiginn var hringdans á Sunnudagskveldið á balli við mikla kátínu gesta...

Svo keypti ég mér bíl eftir versló.

Gripurinn er Volkswagen Golf 2000 model. Silfur grár og er ég hæst ánægður með hann.

Svo fyrir 5 dögum fór ég til Ribe að keppa í opna danska meistaramótinu í víkingabogfimi. Það gekk ágætlega og bætti ég mig um 50 stig frá því í fyrra. Við fórum einnig á stað sem heitir Vejen sem er með einum af stærstu bogfimi hringjum Danmerkur. Það eru um 66 skotmörk, öllum komið fyrir inní skógi. Þessi skotmörk eru svona frauðdýr og er mjög gaman að plaffa á þau :D Svo eftir keppnina var mikið fyllerí og þambaður mjöður af bestu lyst...auk koníaks...ákavítis....dönskum kúmensnaps og auðvitað þjóðardrykknum bjór. Daginn eftir var furðu lítil þynnka og þá var farið til Bork. Þar var stærsti víkingamarkaður sem ég hef séð... það var fátt sem ekki var hægt að fá þarna. En ég þurfti að stilla mig því ég átti eftir að fara í Læderiet. Við gistum í víkingaþorpinu í Bork og morguninn eftir var farið í Læderiet og þar var eytt svoldið af pening í leðurvinnslu verkfæri þræði og leður og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var haldið til Köben og flogið heim um kvöldið..


Þetta verður ekki mikið lengra því ég er að fara að pakka upp þessu dóti og taka aðeins til í greninu ;)

another day in the gamers life goes by....

IngÓ
Ingólfur Pétursson

A momentary maniac with casual delusions

26. júlí 2007 klukkan 07:16
Góðann daginn.


Lítið hefur nú gerst síðustu daga....

Maður er jú bara að vinna á fullu og reyna að safna smá pening. Stefnan er sett á bíl í haust og vonandi eitthvað stærra seinna.

En já. Nú nálgast Ribe hratt og maður er orðinn pínu spenntur. Ég er að gera mér örvar og skó og ég veit ekki hvað og hvað. Allt þarf þetta jú að klárast fyrir Ribe. Ég fór þangað á síðasta ári og ég stefni nú á að fara hvert ár héðan af.

Svo eru æfingarbúðir í Nóvember með Richard Amos og Steve Ubl sem ég stefni á að fara á. Þær eru víst í London eða eitthvað álíka.

Lítið gengur að endurnýja froskinn sem hvarf í síðustu viku en áfram held ég að skoða.

Svo er bara verið að vinna eins o brjálæðingur þessa vikuna og maður er orðinn pínu þreyttur á því að keyra á Hvanneyri á hverjum morgni. Það er ég  búinn að gera síðasta einn og hálfann mánuðinn. En þetta er að verða búið. Loksins.


Ég ætla ekki að hafa þetta lengra.

Another day in the gamers life goes by.

IngÓ
Ingólfur Pétursson

Sorgar fréttir.

19. júlí 2007 klukkan 21:14
Góða Kvöldið.


Sorgar atburður hefur átt sér stað að Háholti 31 B.

Kl 21:02 Var Straumur Ingólfsson úrskurðaður látinn. Hann skilur eftir sig eiginkonu. Öldu Ingólfsdóttur.

Hann greindist með svokallað Bloatyfrog syndrome sem er mjög algengt hjá African Clawed froskum.

Hans verður sárt saknað.

Útför fór fram í kyrrþey á salerni Háholts 31 kl 21:07.

Rósir afþakkaðar.

Ég vill nýta tækifærið og auglýsa eftir því hvar maður getur verslað froska í Höfuðborginni því líklegt er að Alda farist annaðhvort úr ástarsorg eða einsemd ef enginn staðgengill finnst  fljótlega.

Another day goes by in the gamers life.

IngÓ

R.I.P Straumur
Ingólfur Pétursson

A left foot trapped in a sensual seduction....

15. júlí 2007 klukkan 22:30
Haaaaalló!! :)

Sælt veri fólkið.

Síðasta vikan er búin að vera ágæt. Einar, þjálfarinn minn, var að koma úr fríi og æfingarnar eru þá að byrja aftur að fullu. Ég er farinn að fara á æfingar í Breiðablik þar sem hann er að þjálfa. Bæði fyrir auka þjálfunina og einn annan hlut ;)

Allavegana, svo var víkingahátíð á Eiríksstöðum um helgina. Baaaaara gaman. Það voru teknir leikir og bogfimi keppni. Ég missti af henni vegna þess að ég var svo duglegur að föndra úr leðri að ég bara gleymdi mér. Svo um kvöldið var drukkið að sjálfsögðu og teknir leikir einnig bara uppá gamanið. Svo í morgun vaknaði maður og ég er ekki frá því að það hafi vottað fyrir smá þynnku. En það var ekkert til að kvarta yfir.

En já þetta er alltaf jafn gaman að víkingast og þeir sem hafa aldrei séð þetta ættu að skammast sín og drífa í því að sjá þetta...allavegana einusinni.


En ég hef ekki frá neinu meira að segja svo að ég er að hugsa um að hafa þetta ekki mikið lengra :)

Another day in the gamers life goes by.

IngÓ
Ingólfur Pétursson

Könnun

Hvort er betra Pepsi eđa kók?

Prófíll

  • Nafn: Ingólfur Pétursson
  • Stađur: Akranes
  • Atvinna: Smiđur.
  • Hjúskaparstađa: Genginn út ;)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur